Iceland North America Alliance
3.4.2009 | 12:28
Þetta líst mér vel á, flýtir fyrir því að ná stöðuleika og síðan í framhaldi er ekkert því til fyrirstöðu að skipta yfir í Evru eftir 4 til 8 ár ef þjóðin ákveður að Ísland gangi í ESB.
það er því miður allt of mikið af "ekki fundið upp hér" hugsun í Íslenskum stjórnmálum - það þarf róttækar lausnir sem kallar á pólitískt hugrekki til að koma Íslandi út úr þessu ástandi sem við erum í. Krónan er dauð - það tala hana allir niður, höftin eru að lama íslenskt atvinnulíf og við getum ekki beðið í þau ár sem tekur að finna út hvort við förum í ESB eða ekki. Dollar er góð skammtímalausn sem hægt er að framkvæma strax.
Ég bendi á Facebook hópinn "Iceland North America Alliance" sem berst fyrir sömu hugmynd:
http://www.facebook.com/group.php?gid=52098381302
SUS: Vilja Bandaríkjadal á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Óskiljanleg að Dollar sé ekki meira í umræðunni og nánara samstarf við Kanada og USA. Við eigum að segja bless bless við EU og halda vestur á bóginn.
Guðjón Atlason (IP-tala skráð) 3.4.2009 kl. 12:40
Mín persónulega skoðun er að við ættum að styrkja okkar bönd bæði til Evrópu og Norður Ameríku, við liggjum nú þarna mitt á milli og ættum að nýja okkur þá sérstöðu eins vel og við getum...
Róbert Viðar Bjarnason, 3.4.2009 kl. 12:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.