Páskahittingur Hugmyndaráðuneytisins í dag um Lýðræði 2.0
11.4.2009 | 11:43
Í dag verður fundur í Hugmyndahús Háskólanna (gamla Erlingsen/Saltfélagið), Grandagarði 2 kl. 16:30 á vegum Hugmyndaráðuneytisins.
Farið yfir helstu þróun innan grasrótarinnar í tæknilegum lausnum hvað varða nútímavæðingu lýðræðis á Íslandi. Sýnt verður hvað þegar hefur verið gert nú þegar og hugmyndafræðin á bak við það kynnt. Einnig verður farið í framtíðarhugmyndir um beinna lýðræði með aðstoð tækninnar, hvernig almenningur getur fengið rödd á Alþingi og þannig veitt stjórnmálamönnum aðhald.
Hugmyndir um framvísun atkvæða, samræðustjórnmál og aðgengi almennings að ferlum í ákvarðanatöku verða ræddir auk þess sem farið verður yfir mikilvægi þess að búa til sameiginlegan umræðugrundvöll um þjóðmálin.
Hér er því gott tækifæri fyrir pólitíska áhugamenn að fá beint í æð það sem kraumar í grasrótinni um málefni lýðræðisþróunarinnar.
Að lokum verða pallborðsumræður og spjall.
Sjá meira hér á Facebook:
http://www.facebook.com/event.php?eid=67194099434
Ég verð þarna með kynningu á Skuggaþingi, http://beint.lydraedi.is/
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.